Þorláksgeislafjölskyldan ávarpar alheiminn

Fjölskyldudagur Calidris

júní 6th, 2008 by Unnur Björk

Hinn árlegi fjölskyldudagur Calidris var haldinn á miðvikudaginn í Grenilundi, Heiðmörk. Veðrið lék við okkur því þó það væri hvasst fyrir utan lundinn þá var skjólsælt innan hans og hitinn um 16 stig. Þarna var farið í ýmsa leiki, grillaðar pylsur og brauð og sykurpúðar á greinum. Stórstjarnan Stígur úr Stundinni okkar mætti á svæðið við mikla lukku yngri kynslóðarinnar og fór í leiki með krökkunum. Þegar klukkan var rétt að verða átta tókst mér að draga börnin mín í bílinn en þurfti þó fyrst að sannfæra Elísu margoft um að Stígur væri líka á leiðinni heim. Hún var aldrei meira en í metersfjarlægð frá honum. :) Hlynur aftur á móti fór alveg í kúk og kleinu við að sjá stórstjörnuna og þorði ekki að koma nálægt honum, a.m.k. ekki án þess að ríghalda í mig og gera tilraun til að skríða inn í mig á nýjan leik. Honum þótti þetta samt vissulega spennandi en fannst öruggara að vera bara í frisbíleik með mömmu.

Hér eru nokkrar myndir frá þessum skemmtilega degi:

Iðunn og Hlynur í frisbí Hlynur Örn Pylsur og brauð á greinum Stígur kominn. Hlynur og Iðunn virða hann feimnislega fyrir sér. Elísa Rún og stórstjarnan Stígur ásamt Degi hennar Röggu Stórfiskaleikur Þeir sem fóru ekki í stórfiskaleik Calidris börnin og Stígur

Að lokum vil ég endilega koma því á framfæri að Calidris var í fyrsta sæti í sínum flokki í fjölda kílómetra í “Hjólað í vinnuna” sem lauk fyrir tveim vikum síðan og í þriðja sæti í fjölda daga. Calidris var jafnframt á toppnum í fjölda kílómetra af öllum fyrirtækunum sem tóku þátt í ár. Verðlaunaafhending fór fram í Húsdýragarðinum í síðustu viku þar sem stoltir fulltrúar Calidris tóku við skjöldunum tveimur. Við erum verulega montin með árangurinn eins og gefur að skilja. :)


Brjósklosaðgerðin að baki

júní 4th, 2008 by Örn

Þetta gekk svona líka ljómandi vel. Vaknaði klukkan 10:30 eftir aðgerðina eins og eftir væran nætursvefn. Hress og sársaukalaus. Eftir ljómandi góða afslöppun og bókalestur á Landsspítalanum sótti Unnur mig eftir kvöldmatinn þannig að ég er bara kominn heim. Fyrstu klukkutímarnir lofa góðu því mér líður mjög vel og finn ekki fyrir sársauka. Nú er bara að slaka aðeins á næstu daga og láta sárin gróa.


Örn undir hnífinn

júní 4th, 2008 by Unnur Björk

Það er komið að því. Örn fór á spítalann í morgun til að leggjast undir hnífinn. Hann er sem sagt að fara í brjósklosaðgerð sem væntanlega á sér stað akkúrat þessa stundina. Hann verður svæfður og svo er skorinn 2-5 cm skurður í gegnum vöðva og hreinsuð út einhver drulla sem er að valda þrýstingi á taugarnar og þ.a.l. verkjunum. Hann verður á spítalanum í nótt en útskrifast svo á morgun. Vonandi verður hann eins og nýsleginn túskildingur að þessu loknu og getur farið verkjalaus og hress í sumarfrí til Frakklands.

Allir góðir batastraumar eru vel þegnir.


Dismiss a lie

júní 3rd, 2008 by Unnur Björk

Hvað þýðir þessi titill á bloggfærslu gæti einhver spurt. Já ekki nema von enda segir það sig ekki alveg sjálft. Ég var að lesa gamalt Fréttablað hér áðan við morgunverðarborðið (heima með veikan Hlyn Örn í dag) þegar Hlynur Örn hrópaði allt í einu upp yfir sig: “Dismiss a lie!” Ha? kváði ég og hann endurtók “dismiss a lie!” og benti ákafur á blaðið. Þar var mynd af Regínu og Friðriki Ómari í miðju atriði að syngja “This is my life” sem útleggst á Hlynísku “Dismiss a lie”. Augljóst ekki satt? :)


Gulrótarkaka að hætti húsbóndans

maí 30th, 2008 by Örn

Ég er mikið fyrir gulrótarkökur. Frábrigðalítið panta ég mér gulrótarköku þegar farið er á kaffihús, svona til að fá eitthvað sætt með kaffinu. Sennilega er þetta undirmeðvitundin að gera sitt besta til að fá mig til að borða grænmeti, veit ekki. Ég er ekki mikið fyrir mjög dökkt súkkulaði (Unnur og Elísa sjá alveg um það) þannigað gurlótarkakan hittir alltaf í mark.

Ég hef lengi bakað gulrótarköku í afmælum barna minna en aldrei tekist að finna eins góða uppskrift og maður fær venjulega á kaffihúsum, fyrr en fyrir ári síðan. Vitanlega var það með hjálp Google sem það tókst. Hér er svo uppskriftin sem ég nota þessi misserin, klikkar ekki. Verði ykkur að góðu :)

Gulrótarkaka

Kakan
5 dl gulrætur
5 dl hveiti
5 dl sykur
4 stk egg
2 dl matarolía
2,5 dl valhnetur
2 tsk kanill
2 tsk lyftiduft
1,5 tsk salt
1,5 tsk matarsódi
1 tsk múskat
Lítil dós kurlaður ananas

1. Rífið gulræturnar og grófsaxið hneturnar
2. Blandið saman hveiti, lyftidufti, matarsóda, salti, kanil, múskati og sykri.
3. Hrærið saman egg og olíu og blandið með sleif saman við hveitiblönduna ásamt gulrótum, ananaskurli og hnetum.
4. Setjið deigið í smurða ofnskúffu og bakið neðst í ofninum við 180°C í u.þ.b. 60 mínútur. Látið kökuna kólna.

Kremið
250 gr. flórsykur
150 gr. rjómaostur
1,5 dl valhnetur til skrauts
sítrónusafi eftir smekk

5. Hrærið saman rjómaost, flórsykur og sítrónusafa.
6. Smyrjið kreminu á kalda kökuna og stráið grófsöxuðum valhnetum yfir til skrauts.

Berið fram með rjóma (mjög mikilvægt).


Hjólað í vinnuna

maí 14th, 2008 by Unnur Björk

Eins og alþjóð ætti að vita þá er hjólaátakið “Hjólað í vinnuna” í fullum gangi hjá fyrirtækjum landsins. Calidris er þar engin undantekning og trónir efst (eða ofarlega) í sínum flokki (fyrirtæki með 10-29 starfsmenn) í bæði fjölda kílómetra og fjölda daga . Þátttakan er frábær meðal starfsmanna og í dag voru allir með hjólin í vinnunni nema einn. Það er búið að taka hann á teppið og gera honum grein fyrir alvarleika málsins. ;) Hér er mynd af hinum vaska Calidris hóp.

Hjólagarparnir hjá Calidris

Sjálf kom ég akandi til vinnu í dag, hálfslöpp, en þar sem ég hafði hjólað í vinnuna um síðustu helgi þá er hjólið hér og ég ætla að fara hjólandi heim í dag. Það eru 11 km af göngu- og hjólastígum um Fossvog, Elliðárdal, Árbæ og Grafarholt. Hlakka til heimferðar í blíðunni.


Það styttist óðum

maí 11th, 2008 by Örn

Þegar ákvörðunin um að dvelja í Frakklandi í sumarfríinu var tekin í janúar fannst okkur hrikalega langt þangað til við færum, hálft ár. Það var um daginn. Núna er rétt rúmur mánuður þar til við förum og mikið að gerast þangað til. Ég held það sé vissara að byrja að pakka ef maður á ekki að missa af þessu.

Hér er mynd af húsinu sem við verðum í. Húsið heitir Les Baguettes og er í litlum bæ sem heitir Dolo á Bretaníuskaga Frakklands. Þetta verður unaðslegt.

Les Baguettes á Bretaníuskaga í Frakklandi


París í Þorláksgeisla

apríl 27th, 2008 by Unnur Björk

Elísa Rún hafði fengið þrívíddarpúsl af Eiffelturninum í afmælisgjöf frá okkur foreldrunum og við mæðgur púsluðum turninn samviskusamlega saman um helgina. Hann samanstendur af 300 kubbum og er fullkláraður alls 66 cm að hæð. Við vorum mjög stoltar og ánægðar með okkur þegar við vorum búnar.

Elísa Rún og Eiffelturninn

Í sólinni í dag ákváðu svo Elísa Rún og Hlynur Örn að færa París til Reykjavíkur enda meðvituð bæði tvö um fyrirhugaða heimsókn okkar þangað í sumar. Þau bjuggu sér til litla París úti á svölum. Stilltu púsluðum Eiffelturninum upp úti og lágu svo þar á dýnu undir teppi í stuttermabolum, berleggjuð og með sólgleraugu. “Við erum í París” sögðu þau bæði og sleiktu sólina við fætur Eiffelturnsins.

Elísa og Hlynur í sólbaði í \"París\"


Ástarjátning

apríl 26th, 2008 by Unnur Björk

Í gærkvöldi eftir góðan mat við stóra borðið, rétt fyrir svefninn, lokaði Elísa Rún sig inni í herbergi og harðbannaði okkur að koma inn. Eftir dágóða stund kom hún aftur út, sposk á svip og afhenti okkur umslag (sem hún hafði búið til sjálf með því að líma saman tvö A4 blöð) sem á stóð “til mömmu og pabba frá Elísu”. Inni í umslaginu var samanbrotið blað. Öðru megin stóð:

“Við Erum góð fjölskilta saman í Þorláksgeisla 19.”

Hinu megin stóð:

“Mamma og pabbi Ég elska ikur svog mikið.”

Er hægt að fá flottari viðurkenningu en þetta? Engan veginn! Þetta eru bestu og flottustu verðlaun sem ég hef nokkurn tímann fengið. Táraðist við lesturinn og hjartað stækkaði um helming. Það þarf varla að taka það fram að þessum línum fylgdi líka fullt af hjörtum, blómum og teikningu af Elísu sjálfri.

Lífið er yndislegt!


Hún á afmæli í dag …

apríl 23rd, 2008 by Örn

Jæja þá er prinsessan okkar hún Elísa Rún orðin 7 ára gömul. Dagurinn byrjaði með sólskini, afmælissöng og pakkaopnun. Eftir að strákarnir komu sér í vinnuna tók við stelpudagur hjá mæðgunum. Mikið var brallað og endað á að mála keramik og borða frábæran mat á veitingahúsinu Ítalíu.

Til hamingju með afmælið, elsku Elísa Rún.

Elísa Rún afmælisstelpa og blómarós

Elísa Rún og Unnur Björk eftir góðan afmælis- stelpudag